139. löggjafarþing — 73. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:34]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir sagði áðan að nauðsyn væri að vinna og setja lög um þjóðaratkvæðagreiðslur og ég tek undir það. Alþingi á að sjá sóma sinn í því að fyrir liggi hvernig svona atkvæðagreiðslur eigi sér stað.

Þessi tillaga gengur út á það að þjóðin fái að kanna þennan samning, segja já við honum ef henni finnst rétt að hæstv. fjármálaráðherra fái heimild til að skrifa upp á ábyrgð sem hugsanlega leiði til hærri skatta í framtíðinni og leysi önnur vandamál, eða segja nei og gera sér grein fyrir afleiðingum þess, hugsanlega einhverjum þrýstingi í útlöndum, hugsanlega vinnum við málið og fáum æru okkar til baka. Það eru töluverðar líkur á því og ég tel að þær séu meira að segja meiri en 60–70%. Ég segi já.