139. löggjafarþing — 73. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:36]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Frú forseti. Allt frá því að fallist var á að hefja aftur viðræður við Breta og Hollendinga, með umboði sem hljóðaði upp á það að semja mætti um að þrotabú bankans yrði nýtt til þess að standa undir þessum kröfum eins og eðlilegt er, hef ég haldið því fram að nýja niðurstöðu þyrfti alltaf að leggja í dóm þjóðarinnar, það þyrfti alltaf að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu úr því sem komið væri, þingið gæti ekki tekið málið til sín aftur. Mér finnst það blasa við og mér finnst málflutningur stjórnarliða sem gengur út á það að þetta mál sé einhvern veginn annars eðlis en þau mál sem eiga heima í þjóðaratkvæðagreiðslu ekki ganga upp. Ef eitthvert mál á heima í þjóðaratkvæðagreiðslu er það mál þar sem þingið er í rauninni að fara fram úr þeim heimildum sem það hefur samkvæmt lögum, ég tala nú ekki um þegar því hefur áður verið vísað til þjóðarinnar.

Verstur er þó málflutningur þeirra stjórnarliða sem koma hér upp og tala eins og þeir hafi verið kjörnir til þess að hafa vit fyrir almenningi, þeir séu komnir í þá stöðu og það sé ábyrgð þeirra að hafa vit fyrir almenningi sem viti ekki betur í þessu máli og þess vegna (Forseti hringir.) þurfi þeir að taka þessa erfiðu ákvörðun. Ég hafna slíkum málflutningi, styð þessa tillögu og segi já.