samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Frú forseti. Við sjáum á þessari atkvæðagreiðslu að þingmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa ekki skipt um skoðun á milli atkvæðagreiðslna og þess vegna er ljóst að þjóðin mun ekki fá, a.m.k. ekki frá hendi Alþingis, að taka afstöðu til þessara samninga þrátt fyrir ótrúlega sögu ríkisstjórnarinnar í þessu ömurlega máli. Ég er á móti þessum samningum vegna þess að öll efnahagsleg áhætta er á hendi okkar Íslendinga, ekki Breta eða Hollendinga. Ég hefði viljað sjá sameiginlega ábyrgð þar.
Í ár á að greiða 26.000 milljónir vegna þessa samkomulags, 26 milljarða. Nú getur þjóðin ekki gert neitt annað en að halda áfram að berjast fyrir því að safna áskorunum til handa forseta Íslands (Forseti hringir.) um að málið fari aftur í lýðræðislegan farveg og þjóðin fái að eiga lokaorðið í þessu máli.