samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Forseti. Það er eiginlega svolítið sorglegt, miðað við allt það sem við höfum farið í gegnum á þessu þingi, síðan ég byrjaði að vinna á þessum stað og hve mikilvægt er að hafa skýrar verklagsreglur, að ríkisstjórnin ákveði að taka burt rammann sem hún þarf að fylgja eftir og ákvað sjálf að fylgja eftir. Hvað ef einhverjir aðrir taka við? Þá ber þeim ekkert að fylgja eftir þeim verklagsreglum sem hæstv. fjármálaráðherra segist fara eftir. Það væri mjög fínt að fá einhverja skýrslu um það hvernig fram vindur aðra en þá sem við fengum hér í skötulíki.
Þessi tillaga þýðir á mannamáli að ríkisstjórnin ætlar að gera allt sem hún getur til að endurheimta það sem var mokað innan úr bönkunum yfir til fjárglæframanna og að þeir verði látnir borga brúsann. Ég skil ekki af hverju hæstv. ríkisstjórn vill ekki hafa það skýrum stöfum í þessum hörmungarsamningi (Forseti hringir.) sem þvinga á upp á þjóðina.