139. löggjafarþing — 73. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[15:01]
Horfa

Skúli Helgason (Sf):

Virðulegi forseti. Icesave-málið er ein af mörgum sárgrætilegum birtingarmyndum fjármálahrunsins. Það er sárgrætilegt að almenningur þurfi að gjalda fyrir svikamyllur fjárglæframanna sem léku rússneska rúllettu með hagkerfi okkar.

En þetta er ekki eina birtingarmyndin og reyndar ekki sú sem kostar hæstu fjárhæðirnar fyrir íslenskt samfélag; 47 milljarðar samkvæmt meðalspá í dag um heimtur úr þrotabúi Landsbankans er verðmiðinn fyrir ríkissjóð. Það eru sannarlega miklir peningar en þó ekki fordæmalausar drápsklyfjar fyrir íslenskt þjóðarbú í náinni framtíð. Við höfum meira að segja á borðinu dæmi um vandamál sem hafa kostað þetta þjóðarbú enn meira, 72 milljarðar er verðmiðinn sem við höfum þurft að greiða í bætur til atvinnulausra á Íslandi á undanförnum þremur árum.

Það að ljúka Icesave er hins vegar mikilvæg lausn fyrir íslenskt efnahags- og atvinnulíf. Með því að ljúka því máli byrjum við að afþíða íslenskt hagkerfi. (Forseti hringir.) Við opnum fyrir streymi erlendra lána til landsins í fjárfestingar og það (Forseti hringir.) mun skapa okkur atvinnu. Ég segi því já.