139. löggjafarþing — 73. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[15:03]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Við getum öll verið sammála um það hér inni, sem og þjóðin öll, að þetta mál er ömurlegt. Allt frá því að málið kom fyrst hér inn í þingið og hinir svokölluðu Svavarssamningar lágu fyrir og reynt var að fá þá samþykkta hefur verið reynt að halda til baka upplýsingum og reynt að þvæla umræðuna. Ég er mjög undrandi á því að sumir stjórnarliðar séu svo forhertir að þeir lýsi því yfir að þeir hefðu helst viljað klára málið á sínum tíma með Svavarssamningunum. (Gripið fram í: … ágætur samningur …) Það segir mér að menn vilja ekki horfast í augu við að mistök voru gerð, eru ekki menn til að viðurkenna það og maður verður dapur í bragði við að sjá það.

Þetta er ekki glæsileg niðurstaða, hefur aldrei verið það og er ömurlegt mál. Óvissan er mikil. Ég vil frekar taka sénsinn á því að Bretar og Hollendingar fari í dómsmál við okkur vegna þess að okkur ber ekki lagaleg skylda til að greiða þetta og ég hef ekki sannfæringu fyrir því að sá samningur sem fyrir liggur sé nógu góður. (Forseti hringir.) Ég segi nei, nei, nei.