samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Hæstv. forseti. Það er rétt sem hefur komið fram í þessari umræðu að sú krafa sem nú er höfð uppi á hendur okkur Íslendingum byggir ekki á lagalegum grunni. Miklu frekar er um það að ræða að reynt sé að þvinga okkur til greiðslu á grundvelli þess að hagsmunum okkar sé betur borgið með því að samþykkja samkomulagið og taka á okkur þessa greiðslur en ekki.
Þarna er um að ræða mat á mismunandi stöðu, mat á áhættuþáttum sem fylgja samningi og mat á áhættu af því að gera ekki samning. Niðurstaða mín er sú að ekki sé forsvaranlegt að samþykkja samninginn. Mat mitt byggist á því að betra sé fyrir okkur að segja nei og það (Forseti hringir.) geri ég í þessari atkvæðagreiðslu.