samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég er stoltur af því að barátta okkar og margra aðila í samfélaginu varð til þess að út fór hæf samninganefnd sem náði ágætissamningum. Það ber að hafa í huga. Við verðum samt að átta okkur á því að öll skref ríkisstjórnarinnar fram að því höfðu eyðilagt samningsgrundvöll þjóðarinnar. Þess vegna eru þessir samningar ekki betri en raun ber vitni og öll áhættan hvílir enn á Íslendingum, sem er í sjálfu sér eitthvað sem við ættum ekki að sætta okkur við.
Ef við hefðum byrjað á réttum enda í þessu máli hefðum við að sjálfsögðu athugað fyrst hvort okkur bæri lagaskylda til að greiða yfir höfuð. Það gera allir aðilar, hvort sem um er að ræða þjóðir eða fyrirtæki eða einstaklinga. Lagaskyldan liggur ekki fyrir og ríkisstjórnin, með aðstoð Sjálfstæðisflokksins, (Forseti hringir.) vill ekki einu sinni hafa ákvæði í þessum lögum um það að ef dómstóll kæmist að því að við ættum ekki að greiða fengjum við notið þess. (Forseti hringir.) Það er ótrúleg afstaða og þess vegna segi ég nei við þessu samkomulagi.