störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að bera þetta mál fram við mig, en ég tek skýrt fram í byrjun að við hæstv. umhverfisráðherra erum ekki í sama flokki og þar með ekki beint með sömu skoðanir. Þess vegna erum við ekki í sama flokknum, það er nú bara svoleiðis.
Ég gat því miður ekki hlustað á utandagskrárumræðuna í gær og ekki heldur lesið hinn merka hæstaréttardóm sem hér er vitnað til. Þetta mál allt er langtímadeilumál sem hefur verið rifist um dálítið lengi. Það snýst m.a. um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga sem er varinn í 78. gr. stjórnarskrárinnar og er örugglega 1. gr. sveitarstjórnarlaga líka, þ.e. um að sveitarfélög ráði sjálf málefnum sínum eftir því sem lög ákveða. Svo geta komið einhver önnur lög inn. Mér virðist að þarna hafi verið túlkunaratriði sem endaði með því að Hæstiréttur sneri málinu og dæmdi þetta þannig að umhverfisráðherra bæri að staðfesta skipulag Flóahrepps. Í framhaldi af því hefur hæstv. umhverfisráðherra lýst því yfir að hún muni staðfesta skipulag Flóahrepps. Því fagna ég, virðulegi forseti, að dómi Hæstaréttar skuli vera hlítt. Svo minni ég auðvitað á að eftir þennan dóm hefur lögum verið breytt og sett fastar þarna þannig að það sé ekki lengur einhver ágreiningur um þessi atriði.
Ég ítreka það sem ég sagði áðan, virðulegi forseti, ég tel að sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga eigi að virða og þau hafi þetta vald, þ.e. skipulagsvaldið. Eins og ég segi fagna ég því að þetta skipulag skuli vera samþykkt þótt seint sé.