störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar að taka til máls undir liðnum um störf þingsins vegna þess dóms sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun um mál níumenninganna. Þeim málatilbúnaði sem Alþingi hafði í því máli í gegnum forseta Alþingis, að vísu fyrrverandi forseta Alþingis, var vísað til föðurhúsanna. Þetta mál hefur frá upphafi verið til mikils vansa fyrir Alþingi Íslendinga og það er komið út um allar koppagrundir í heiminum að Alþingi Íslendinga hafi staðið fyrir pólitískum ofsóknum gagnvart fólki. Það að leggja fram ákæru sem leiðir hugsanlega til ævilangs fangelsis fyrir það sem gekk hér á var alveg ótrúlegt.
Það er komið að því að Alþingi og forseti þess biðji þessa níumenninga afsökunar á þeim ákærulið sem hér um ræðir og sem var sendur í bréfi til ákæruvaldsins og óskað eftir að ákært yrði eftir. Málatilbúnaður forseta Alþingis, fyrrverandi að vísu, eins og honum var hafnað af dómstólum hefur leitt til þess að fólkið mun ekki dvelja mjög lengi í fangelsi og tvennt fékk skilorðsbundna dóma. Mér finnst einboðið að núverandi forseti þingsins og Alþingi allt biðji þetta fólk nú þegar afsökunar og taki að sér að greiða hluta þess lögfræðikostnaðar sem það hefur orðið fyrir, þá þann hluta sem leiðir af ákæru vegna 100. gr. almennra hegningarlaga. Fólk býr sig náttúrlega undir og eyðir meira fé í lögfræðikostnað þegar það stendur frammi fyrir hugsanlega ævilöngum fangelsisdómi en hugsanlegri sekt fyrir það að bíta lögregluþjón eða halda opnum dyrum í leyfisleysi. Ef Alþingi gengi fram með þessu máli mundi það ná aftur hluta virðingar sinnar og sáttum við þjóðina líka. Ég held að það sé kominn tími til þess að Alþingi hegði sér öðruvísi og sýni ekki lengur þann hroka sem kemur fram í þessum samskiptum.