störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp af tveimur ástæðum. Annars vegar vil ég taka undir með þeim sem hafa komið í pontu og hrósað þeim dómi sem féll í dag er varðar 100. gr. hegningarlaganna, að henni var ekki beitt gagnvart svokölluðum níumenningum og tek að öðru leyti undir mál hv. þm. Þórs Saaris og Marðar Árnasonar í þeim efnum.
Hitt málið sem mig langar til að ræða lýtur að þeim gjörningi sem fram fór hér í dag og varðar þjóðaratkvæðagreiðslur. Ég hef oftar en einu sinni tjáð þá skoðun mína í þessari pontu að Icesave-skuldbindingin eigi ekki að fara til þjóðarinnar frekar en aðrar fjárskuldbindingar. Ég tel t.d. að fjárlög íslenska ríkisins eigi ekki að fara til þjóðarinnar á tíma eins og þessum, reyndar ekki á neinum tímum. Skattahækkanir eða skattalækkanir eftir atvikum eiga heldur ekki að vera undir þjóðinni komið á hverjum tíma. Það hlýtur að vera úrlausnarefni stjórnvalda, lýðræðislega kjörinna fulltrúa á hverjum tíma að taka ákvörðun um það efni.
Við þingmenn verðum hins vegar í ljósi atburða dagsins að fara að huga að því að setja hér reglur og lög er varða undirskriftir fyrir fólk sem vill knýja á um þjóðaratkvæðagreiðslur um mörg mikilvæg mál, mörg stefnumarkandi mál er varða grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Sjávarútvegsmál sem og önnur mál gæti ég nefnt sem pólitísk óvissa hefur verið um langt árabil.
Ég tel það mjög mikilsvert verkefni þingmanna og væntanlega allsherjarnefndar að fjalla um þetta mál á næstu dögum. Það má ekki vera svo að menn geti rengt undirskriftalista í hvívetna og talið þá vera illa fengna ef út í það er farið. Hægt sé að setja ýmis nöfn á slíka lista án samþykkis viðkomandi. Við þingmenn þurfum að eyða slíkri (Forseti hringir.) óvissu í ljósi atburða dagsins og fá þetta til viðkomandi nefndar til að koma á eðlilegu kerfi í þessu efni svo þjóðaratkvæðagreiðslur (Forseti hringir.) um eðlileg málefni geti farið fram.