139. löggjafarþing — 74. fundur,  16. feb. 2011.

uppstokkun réttarkerfisins og millidómstig.

277. mál
[16:26]
Horfa

Flm. (Árni Johnsen) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um uppstokkun réttarkerfisins og millidómstig um að Alþingi álykti að fela innanríkisráðherra sem áður var dómsmála- og mannréttindaráðherra að undirbúa uppstokkun réttarkerfisins með samræmingu vinnureglna og undirbúningi millidómstigs sem annars dómstigs á milli héraðsdóms og Hæstaréttar. Við vinnuna verði haft samráð við Dómarafélag Íslands, Lögmannafélag Íslands og háskólaprófessora með sérþekkingu á sviði réttarfars.

Virðulegi forseti. Um langt árabil hefur verið mikið misræmi á milli dóma á Íslandi og það hefur aukist á síðustu árum. Kannski er það vegna þess að álag hefur orðið æ meira á dómurum og þeir hafa haft minni tíma til að véla um þau atriði sem ágreiningur er um, en dæmi eru um að sama dag hafi fallið dómar í gagnstæðar áttir í sambærilegum dómsmálum. Oft og tíðum virðist sem dómar grundvallist á algjörum hugdettum dómara, bæði um dóma héraðsdóms og í Hæstarétti. Með fjölgun dómara er mikil hætta á að misræmi aukist og er því mikilvægt að stokka kerfið upp, gera það heilsteyptara og auka trúverðugleika fremur en draga úr honum eins og nú virðist stefna í. Íslenska réttarkerfinu hefur stundum verið líkt við réttarkerfi bananalýðvelda. Þeir sem lengst ganga í slíkum samlíkingum halda því jafnvel fram að íslenska réttarkerfið sé fremur eins og þau sem einkenna bavíanalýðveldi. Þetta eru stór orð, virðulegi forseti, en því miður er hægt að benda á ýmis atriði sem undirstrika það sem hér hefur verið sagt.

Vandræðagangurinn í kringum landsdóm sem var barn síns tíma og hefur dagað uppi sem tröllaklettur í réttarkerfi nútímans er nægur grundvöllur ástæðna og raka til þess að gera þá bragarbót á réttarkerfinu sem framsækið þjóðfélag þarf á að halda. Hæstaréttardómarar voru fimm talsins til skamms tíma og síðan sex og stefnt er að fjölgun þeirra í níu. Fjölmargir lögmenn telja að fjölgun hæstaréttardómara sé ekki það sem við þörfnumst því að fjölgun dómara auki misræmi milli dóma réttarins.

Miklu nær er að setja á fót millidómstig sem gæti til að mynda fengið heitið Lögrétta, staðsett á milli héraðsdóms og Hæstaréttar. Millidómur mundi væntanlega taka til meðferðar mörg sakamál og úrskurða um gæsluvarðhald. Til greina kæmi að þar færi fram önnur umferð skýrslutöku á eftir héraðsdómi. Skýrslur eru aðeins í undantekningartilvikum teknar fyrir í Hæstarétti. Það þýðir í reynd að ef Hæstarétti þykir dómur héraðsdóms ekki nægilega ígrundaður ógildir hann dóm héraðsdóms. Fyrir almenna borgara kemur slíkt þannig út að erfitt verður fyrir þá að skilja misræmið sem von er.

Mörgum málum sem annars er vísað til Hæstaréttar yrði lokið í millidómi, réttarkerfið yrði liprara og mál gengju mun fljótar fyrir sig. Ljóst verður að telja að millidómstig mundi létta mjög álaginu af Hæstarétti. Danir og margar fleiri Evrópuþjóðir eru með millidómstig, og skiptist dómskerfi þeirra í héraðsrétt, landsrétt og hæstarétt. Reikna mætti með því að í millidómi sætu þrír dómarar að öllu jöfnu þannig að heildarfjöldinn þyrfti væntanlega að vera alls fimm til sex dómarar.

Virðulegi forseti. Að lokinni umræðu um þetta mál óska ég eftir að því verði vísað til allsherjarnefndar.