139. löggjafarþing — 74. fundur,  16. feb. 2011.

vinnuhópur um vöruflutninga.

279. mál
[16:31]
Horfa

Flm. (Árni Johnsen) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um vinnuhóp varðandi vöruflutninga, að Alþingi álykti að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sem sagt innanríkisráðherra, að skipa vinnuhóp til að gera ítarlega úttekt á vöruflutningum hérlendis, þar á meðal á hagkvæmni þess að auka vöruflutninga á sjó.

Brýn þörf er á því að nú þegar sé gerð ítarleg úttekt á mögulegum úrbótum í vöruflutningum á Íslandi, bæði á sjó og landi. Álag á vegakerfi landsins hefur aukist mjög á undanförnum árum með umfangsmiklum vöruflutningum stórra flutningabíla. Að mörgu leyti eru íslensku þjóðvegirnir varla til þess gerðir að mæta slíkum flutningum, auk þess sem flutningarnir krefjast mikillar varkárni af hálfu bílstjóra í tengslum við umferð venjulegra fólksbíla. Vöruflutningar á landi hafa reynst hagkvæmir í þjónustu við landsbyggðina, en sjálfsagt er að kanna alla möguleika til hlítar. Kanna þarf hagkvæmnina út frá tíðni ferða, þörfinni, kostnaði og öðrum þáttum. Einn vöruflutningabíll slítur vegakerfinu 20–30 þúsund sinnum meira en venjulegur fólksbíll þannig að margs er að gæta. Það má segja að ekki slíti skipin hafinu en á móti kemur oft erfið barátta við náttúruöflin.

Mikilvægt er að gera úttekt á vöruflutningum í samvinnu við hagsmunaaðila í flutningum á sjó og landi, sveitarfélög, sérfræðinga og embættismenn, með það að markmiði að bjóða upp á hagkvæmustu kosti sem völ er á. Vöruflutningar á landi eiga vart samleið með venjulegum fólksbílum á fjölmörgum leiðum um vegakerfi landsins eins og það er byggt upp. Þó að það sé vel gert á mörgum stöðum er það þröngt og erfitt að tengja þetta saman.

Ég legg til að málinu sé vísað til samgöngunefndar að lokinni umræðu hér, virðulegi forseti.