139. löggjafarþing — 74. fundur,  16. feb. 2011.

umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.

471. mál
[18:20]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er enginn barnaleikur að tala um aðlögun. Evrópusambandið sjálft hefur talað um að það sé misskilningur að tala um að viðræður séu í gangi, eingöngu sé boðið upp á aðlögunarferli en ekki þær viðræður sem boðið var upp á þegar Noregur sótti um. Þetta liggur algjörlega ljóst fyrir. Við erum í sama ferli og Króatía og ef lesnar eru stöðuskýrslur um umsókn Króatíu sést að þar er verið að setja skilyrði fyrir ákveðnum þáttum. Þetta eru nákvæmlega sömu skilyrðin og byrjað er að setja hér. Er hv. þingmaður þá að segja að til að mynda hæstv. landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra og embættismenn þar í ráðuneytinu sem hafa komið fyrir hv. landbúnaðar- og sjávarútvegsnefnd fari með rangt mál þegar þeir tala um að Evrópusambandið sé að byrja að gera kröfur um að við setjum hér upp nýja stjórnsýslu og jafnvel að sækja um styrki? Þetta er ekki eins og málið var kynnt hér. Málið var einmitt kynnt þannig, eins og hv. þingmaður segir, að þetta væru einfaldar viðræður. Þetta er enginn barnaleikur, þetta eru orð á blaði, ummæli (Forseti hringir.) embættismanna í Brussel og allir virðast skilja það nema hv. þingmaður og hæstv. utanríkisráðherra.