139. löggjafarþing — 74. fundur,  16. feb. 2011.

umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.

471. mál
[18:30]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Væntanlega hefur það komið eitthvað klaufalega út úr mér sem ég vildi sagt hafa um gjaldeyrishöftin í landinu og að það þyrfti að afnema þau. Það tekur tíma og er erfitt. Við þurfum að hafa peningamálastefnu.

Við í Samfylkingunni erum með peningamálastefnu. Hún felst í því að við ætlum að ganga í Evrópusambandið og stefna að því að taka upp evru og fá stuðning af Evrópuríkjunum og Seðlabanka Evrópu í ERM II þangað til við tökum upp evruna. Þess vegna segi ég: Það er peningamálastefnan til langs tíma sem ég mæli fyrir. Það er mjög einfalt.