139. löggjafarþing — 74. fundur,  16. feb. 2011.

fundarstjórn.

[19:39]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka forseta fyrir að hleypa hæstv. utanríkisráðherra hingað upp til að segja frá því að hann ætli að taka þátt í umræðunni. Það er mjög mikilvægt að ráðherrann sýni okkur þennan sóma sem hann gerir með því að vera hér. Ég hvet því 1. flutningsmann tillögunnar og hæstv. forseta til að við reynum að horfa til þess að þegar umræðan heldur áfram geti hæstv. ráðherra verið hér og heiðrað okkur með nærveru sinni.