neysluviðmið.
Frú forseti. Ég fagna því að þetta plagg er komið fram, um neysluviðmið. Mér finnst það að mörgu leyti ágætlega unnið, skynsamlegt að skipta þessu niður í dæmigerð neysluviðmið og grunnviðmið og skammtímaviðmið. Ég tel líka mikilvægt að fram fari dálítið góð rökræða um þessi viðmið, það er ekki síður mikilvægt. Þau þurfa að vera rétt og þá þurfa margar reynslusögur að koma að verki. Ég held að þessi neysluviðmið, hvað þau eru há — mér finnst það vera tíðindin í þessu, að hin dæmigerðu viðmið eru frekar há — renna stoðum undir ákveðna þjóðfélagsmynd sem hefur verið að birtast okkur á undanförnum árum. Hún er sú að stór hópur Íslendinga, verulega stór prósenta Íslendinga, nær ekki endum saman og hefur ekki gert um langt árabil. Það er samfélagsmein sem þessi neysluviðmið hjálpa okkur vonandi að takast á við. Þetta leiðir til skuldasöfnunar. Sú skuldasöfnun náði vissum frægum hápunkti sem síðan leiddi til hruns og er náttúrlega risastór vandi sem við glímum við núna.
Þessi neysluviðmið hjálpa vonandi til þess og eins og komið hefur fram í máli annarra þingmanna leiða þau hugann líka að baráttunni við atvinnuleysið. Þegar neysluviðmiðin, hið dæmigerða neysluviðmið, er svona hátt er atvinnuleysisvandinn enn meira böl.
Þessi neysluviðmið varpa líka ákveðnum spegli á okkur sjálf. Það er þessi spurning: Hvað þurfum við? Hún er auðvitað mjög erfið. Þá mundi ég vilja sjá að við spyrðum okkur mjög gagnrýninna spurninga eins og t.d.: Er eðlilegt hvað samgöngukostnaður er mikill á Íslandi? Þurfum við ekki að fara að breyta eitthvað pólitíkinni í sambandi við samgöngur? Samgöngukostnaður er alveg gríðarlegur samkvæmt þessum tölum. (Forseti hringir.) Síðan eyða Íslendingar líka alveg gríðarlega miklu, við erum gríðarleg neysluþjóð miðað við aðrar þjóðir. Þessi neysluviðmið eiga vonandi að hjálpa okkur að takast á við það vandamál.