neysluviðmið.
Frú forseti. Ég fagna því hugrekki ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur að kalla eftir skýrslu um neysluviðmið. Fyrri ríkisstjórnir hafa ekki haft pólitískan kjark til að gera það. Þessi viðmið eru okkur brýning til að setja skýrari markmið um almannatryggingar og aðrar bótagreiðslur þannig að réttur fólks til slíkra greiðslna sé betur varinn þrátt fyrir erfiða stöðu ríkissjóðs. Þessi viðmið sýna vel mikilvægi samneyslunnar. Þeim mun víðtækari og ódýrari sem almenn þjónusta er þeim mun betur er hægt að tryggja lífskjör okkar, sérstaklega þeirra tekjulægri.
Við sem löggjafi eigum að nýta skýrsluna til umræðu um sköpun verðmætra starfa, markmið almannatrygginga, samneyslu og til að stuðla að jafnari tekjudreifingu. Ójöfn tekjudreifing hefur áhrif á almenn lífsgæði í samfélögum, hún dregur úr lífslíkum, veldur heilsufarsvandamálum, aukinni glæpatíðni og streitu.
Við jafnaðarmenn viljum ekki slíkt samfélag. Þessi skýrsla er vitnisburður um vilja okkar til að bæta og jafna lífskjör í íslensku samfélagi.