áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2011--2014.
Frú forseti. Ég held að óhætt sé að gleðjast yfir því að utanríkisþjónustan og íslensk stjórnvöld hafi náð jöfnu hlutfalli kynja í þátttöku í friðargæslu og þeim verkefnum sem friðargæslunni fylgja. Það er kunnara en frá þurfi að segja að þátttaka kvenna í friðarferli og uppbyggingu samfélaga í lok átaka er algert lykilatriði og það þýðir líka að sérfræðingar landa sem koma til hjálpar og aðstoðar við slíka uppbyggingu þurfa að sjálfsögðu að vera bæði karlar og konur eins augljóst og það nú er, frú forseti.
Annað sem mig langar til að inna hæstv. ráðherra eftir er starf Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi sem ég tel afar mikilvægt og merkilegt og er eitt af þeim verkefnum sem eru kannski ekki mjög sýnileg almenningi en skipta gríðarlega miklu máli. Hér er ég að ræða um bæði sjávarútvegsskólann og jarðhitaskólann, sem er kannski sá sem er best þekktur hérlendis, og svo er auðvitað einnig kominn af stað landgræðsluskóli, góðu heilli, og í fjórða lagi er í gangi tilraunaverkefni, sem ég held að eigi að fara í gegnum mat ef ekki á þessu ári þá næsta vetur, sem er jafnréttisskóli Sameinuðu þjóðanna. Hans er getið hér og reyndar er hans líka getið í jafnréttisáætlun hæstv. velferðarráðherra.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé ekki alveg öruggt og hvort nokkur bilbugur sé á stjórnvöldum um stuðning við fjórða skóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Ég tel þetta afar góða starfsemi og merkilega og að í raun skili hún kannski meiru í þróunarsamvinnu en flest annað sem við erum að gera.