upplýsingalög.
Hæstv. forseti. Ég vil segja það í upphafi að ég tel jákvætt og æskilegt að skilgreina nánar en verið hefur hvað teljist vera vinnugögn og hvað teljist ekki vera vinnugögn. Ég held að reynslan sýni að afar oft hefur verið ágreiningur um nákvæmlega þann þátt. Stjórnvöld hafa á hverjum tíma tilhneigingu til að skilgreina hugtakið vinnugögn nokkuð vítt. Það er eins og það sé kerfislægt viðhorf að opinber stjórnvöld eða þeir sem þar fara með vald hafi tilhneigingu til að halda upplýsingunum hjá sér, einkum í umdeildum og viðkvæmum málum. Það er ákveðin tilhneiging sem ég held að hafi verið ágreiningur um á öllum tímum og í tíð allra ríkisstjórna. Ef við getum náð fram skýrari skilgreiningum í lögunum að þessu leyti held ég að það geti verið jákvætt.
Ég spurði að þessu áðan vegna þess, ég tek það fram að ég hef ekki kafað ofan í þetta enn þá, að mér fannst þetta í fljótu bragði hljóma eins og um þrengingu kynni að vera. Það á eftir að koma í ljós í meðförum allsherjarnefndar hvort svo sé og hvernig eðlilegast sé að túlka þær tillögur sem þarna eru settar fram. Ég teldi það ganga svolítið á skjön við markmið og tilgang frumvarpsins ef útvíkka ætti skilgreiningu vinnugagna með þessum hætti. Þá væri gengið gegn þeim tilgangi frumvarpsins að auka aðgengi upplýsinga fyrir almenning. Þetta eru atriði sem við þurfum að fara nákvæmlega yfir og ég (Forseti hringir.) vænti þess að við í allsherjarnefnd köfum ofan í efni málsins. En eins og ég sagði í upphafi hefur þetta verið eitt helsta ágreiningsefnið hvað snertir upplýsingalögin frá upphafi.