upplýsingalög.
Frú forseti. Það frumvarp sem hér er til umfjöllunar í 1. umr. leysir af hólmi eldri upplýsingalög. Eins og kemur fram í 1. gr. er markmiðið að tryggja gegnsæi í stjórnsýslu og við meðferð opinberra hagsmuna, m.a. í þeim tilgangi að styrkja upplýsingarétt og tjáningarfrelsi, möguleika almennings til þátttöku í lýðræðissamfélagi, aðhald fjölmiðla og almennings að stjórnvöldum, möguleika fjölmiðla til að miðla upplýsingum um opinber málefni og traust almennings á stjórnsýslunni.
Í 5. gr. frumvarpsins er vikið almennt að rétti almennings til aðgangs að gögnum. Þar segir, með leyfi forseta:
„Sé þess óskað er skylt að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6.–10. gr. Ekki er þó ekki skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr.“
Ég kem upp til að ræða þetta mál í aðeins stærra samhengi, nefnilega því að í frumvarpinu, eins og í gildandi lögum, er ekki gert ráð fyrir beinni frumkvæðisskyldu hjá stjórnvöldum til að veita almenningi upplýsingar. Fremur er reiknað með viðbragðsskyldu, þ.e. sé þess óskað, eins og segir í frumvarpinu og raunar líka í gildandi lögum, eru stjórnvöld skyldug til að veita almenningi upplýsingar.
Nú geta komið upp þær aðstæður að það reynir á frumkvæðisskyldu stjórnvalda í upplýsingagjöf eins og t.d. þegar hættuástand skapast eða þegar mengunarvá er fyrir dyrum eins og kom á daginn í hinu svokallaða díoxínmáli sem þessa dagana er mjög til umræðu í fjölmiðlum og m.a. í þinginu og í umhverfisnefnd þingsins. Af því tilefni tók ég saman greinargerð fyrir umhverfisnefnd um löggjöf um upplýsingagjöf í umhverfismálum. Skemmst er frá því að segja að niðurstaða þeirrar greinargerðar er m.a. sú að skerpa þurfi á frumkvæðisskyldu stjórnvalda með beinum lagaákvæðum um upplýsingagjöf og viðbrögð gagnvart almenningi ef vá er fyrir dyrum eða ef vá getur skapast, t.d. vegna mengandi atvinnustarfsemi.
Það eru að vísu í gildi líka sérstök lög um upplýsingagjöf í umhverfismálum en þau eru sama marki brennd og hin almennu upplýsingalög og auk þess getur maður vel séð það fyrir sér að þær aðstæður geti skapast almennt, ekki einungis í umhverfismálum heldur almennt í samfélaginu, að það reyni á skyldu stjórnvalda til að veita óumbeðnar upplýsingar til almennings. Ég vildi bara koma þessu sjónarmiði á framfæri og ég vona að hv. allsherjarnefnd taki þau til athugunar við umfjöllun sína um frumvarpið. Ég óska þess jafnframt, og vona að það berist til eyrna formanni allsherjarnefndar, að umhverfisnefnd verði sent þetta frumvarp til umsagnar, m.a. í ljósi þeirrar athugunar sem nú stendur yfir og tillögugerðar um úrbætur á löggjöf til að bæta réttarstöðu almennings og vernd almennings og rétt til upplýsingagjafar þegar þannig aðstæður skapast.