139. löggjafarþing — 75. fundur,  17. feb. 2011.

framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.

380. mál
[14:54]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætar upplýsingar og ágæta ræðu um neikvæða hlið þessa máls. Það er sjálfsagt að hafa aga í ríkisfjármálum.

Ég vil spyrja hv. þingmann um eitt sem mér fannst vanta í skýrsluna: Hvað er mikið brottfall hjá Menntaskólanum Hraðbraut? Hvað sparar það mikið ef það er minna en hjá öðrum framhaldsskólum?

Í öðru lagi: Hvað kostar stúdentspróf sem Menntaskólinn Hraðbraut framleiðir miðað við aðra skóla þar sem það tekur fjögur ár að framleiða eitt stykki stúdent, oft á tíðum fimm ár, með brottfalli? Mér skilst að meðaltíminn sé fimm ár. Vildi nefndin ekki kanna það?

Kannaði nefndin hvað tveimur árum lengri starfsævi skilaði miklu í þjóðarbúið? Meðallaun eru kannski 5 milljónir, þ.e. 10 milljónir á nemanda í lengri starfsævi, því starfsævi viðkomandi stúdenta lengist væntanlega um tvö ár að öllu öðru óbreyttu. Hvað gefur það miklar tekjur í ríkissjóð í formi skatta? Var þetta ekki kannað í störfum nefndarinnar?

Ég er búinn að nefna að þetta gefur eldra fólki náttúrlega færi á að ljúka stúdentsprófi á stuttum tíma með öguðum hætti. Ég þekki það persónulega að þetta er mjög öguð kennsla. Ég hef ekki kynnst því annars staðar.

Svo vildi ég spyrja: Eigum við von á því að hv. menntamálanefnd kanni og gefi skýrslu um opinbera skóla eins og til dæmis Háskólann á Akureyri sem fór ár eftir ár fram úr fjárlögum? Hann eyddi fjármunum skattgreiðenda ár eftir ár og einnig Háskólinn á Hólum auk fjölda annarra. Mér þætti vænt um að fá skýrslu frá menntamálanefnd um þessi atriði vegna þess að þar er líka farið illa með skattpeninga ríkisins.