139. löggjafarþing — 75. fundur,  17. feb. 2011.

framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.

380. mál
[14:56]
Horfa

Frsm. menntmn. (Skúli Helgason) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal fyrir fyrirspurnirnar. Hann nefnir eitthvert mikilvægasta sérkenni og vandamál íslenska skólakerfisins á undanförnum árum sem er brottfallið. Það er hryggilegt til þess að vita að staða okkar er þar mun verri en Norðurlandanna og flestra annarra nágrannaþjóða sem við berum okkur saman við. Sú sóun sem því fylgir fyrir einstaklinginn og samfélagið er gríðarleg. (ÞKG: Stytta stúdentsprófið.) Það að stytta stúdentsprófið er hins vegar formbreyting sem breytir ekki innihaldi skólastarfsins.

Vandamálið er að við förum með allt of mikið af fólki í gegnum skólakerfið sem finnur þar ekki stað fyrir hæfileika sína og getu og hrökklast út úr kerfinu af því skólinn hefur ekki þá valkosti og brautir sem það leitar eftir. Í þessu liggur vandinn. Vissulega sparar það peninga til skemmri tíma fyrir ríkissjóð að stytta framhaldsskólann þannig að þeir annmarkar sem eru á náminu standi ekki yfir í eins langan tíma en við verðum fyrst og fremst að horfa á innra starfið og hvernig við þjónustum einstaklingana sem fara í gegnum skólakerfið.

Svo ég svari þingmanninum beint þá leituðum við ekki sérstaklega eftir upplýsingum um brottfallið og hvað lengri starfsævi mundi skila miklu inn í þjóðarbúið. Ágæt rök eru fyrir því að kalla eftir þeim upplýsingum almennt séð.

Ég minni á hitt varðandi spurninguna sem hv. þingmaður bar fram í samhengi við opinberu skólana að það er ekki að frumkvæði menntamálanefndar sem við leggjumst í þessa vinnu. Forseti Alþingis biður okkur á grundvelli laga og reglna um Ríkisendurskoðun um að fara sérstaklega í gegnum greinargerðina frá Ríkisendurskoðun. Það er tilefni þess að nefndin leggur í þessa miklu vinnu.