framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.
Virðulegi forseti. Ég verð að játa að ég er eilítið undrandi á þessum svörum hv. þingmanns, sérstaklega í ljósi orða hv. þingmanns í framsöguræðu sinni áðan þar sem hún dró það fram að það væri niðurstaða Ríkisendurskoðunar að hér væru engin lög brotin en það væri hins vegar álitamál hvort þetta væri réttum megin við mörk hins siðlega.
Ég túlka orð hv. þingmanns svo að hún telji að þarna hafi verið eðlilega að málum staðið og bið hv. þingmann að velta fyrir sér hvort við getum verið sammála um að þarna sé farið út yfir mörk þess sem getur talist siðlegt í þessum efnum í ljósi þess að þessar arðgreiðslur eru til komnar vegna þess að skólinn hefur í reynd fengið fjármuni sem hann átti ekki rétt á frá ríkinu og sömuleiðis í ljósi meintra ávirðinga um að þarna borgi stjórnendur skólans kennurum laun undir lágmarkstöxtum í kjarasamningum kennara á markaðnum.