framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.
Frú forseti. Ég ætla bara að ganga úr skugga um hvort mér hafi misheyrst. Hv. þingmaður sagði að hér væri um að ræða ofgreiðslur en ef þeim hefði verið varið á annan hátt en til eigenda værum við ekki að ræða málið. Ég spyr því hv. þingmann: Ef um ofgreiðslur er að ræða getur maður þá stundum nýtt þær í eitthvað annað en ekki greitt þær til baka? Ég vona að mér hafi misheyrst eða að þingmanninum hafi orðið fótaskortur á tungunni þegar hann sagði að ef um væri að ræða að þessum ofgreiðslum hefði verið beint í aðra átt þá værum við ekki að ræða málið.