139. löggjafarþing — 75. fundur,  17. feb. 2011.

framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.

380. mál
[16:30]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ef svo er hlýt ég að gera ráð fyrir því að um það frumvarp sem ég hef lagt fram um breytingar á starfsmannalögunum, varðandi það að koma til móts við athugasemdir Ríkisendurskoðunar til að það verði aukið aðhald í ríkisrekstri og þá sérstaklega rekstri opinberra stofnana, verði breiður stuðningur á meðal vinstri flokkanna, að menn fylgi því sem þeir segja hér, að þetta sé þá ekki eingöngu atlaga að einkareknum skólum.

Það kann vel að vera að það hafi ekki komið nægilega skýrt fram hjá mér um arðsemina. Ég tel það hafa verið mjög óheppilegt að á þessum tíma hafi menn greitt sér út arð og að ráðuneytið skuli ekki hafa haft upplýsingar um það á sama tíma og það kom til móts við skólann í þeim erfiðleikum sem hann átti í, afar óheppilegt svo vægt sé til orða tekið.

Síðan er hitt sem varðar það hvernig menn koma til móts við skólana, það vita þeir sem hafa komið að rekstri skóla, ekki síst þeirra sem eru með rekstur í uppbyggingu, að menn geta ekki séð fyrir nákvæmlega hversu margir koma inn í skóla frá ári til árs. Það er ekki bara frá einu ári til annars, það er ákveðið tímabil sem nýir skólar þurfa að hafa ákveðna aðlögunarhæfni. Ég vona að við getum sammælst um að einkareknir skólar eigi að hafa sömu sveigjuna og aðrir skólar. Ég veit ekki betur en að eins hafi verið tekið á málefnum Hraðbrautar og hefur verið gert við aðra skóla. Reglan var að reyna að koma til móts við og jafna út ef menn fóru yfir varðandi nemendaígildin eða nemendaígildin voru vangreidd.

Hraðbrautin var mikil nýbreytni. Þetta var sérstakt, þetta var algjörlega nýtt á markaðnum og menn gátu ekki séð fyrir með vissu hversu margir mundu sækja um í skólanum. Núna skilst mér að það séu fleiri en 300 nemendur í skólanum en menn töluðu ávallt um í kringum 250. (Forseti hringir.) Þetta verður kerfið innan menntamálanna að bjóða upp á, ákveðinn sveigjanleika, því að eins og við vitum (Forseti hringir.) eru sumir skólar í tísku og aðrir ekki og þannig er þetta breytilegt frá ári til árs.