framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.
Virðulegi forseti. Ég spurði hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur hvaða heimild hún hefði haft í lögum til að afskrifa skuld Menntaskólans Hraðbrautar við ríkissjóð. Það er mikilvægt að fá þetta fram því að Ríkisendurskoðun heldur því fram í greinargerð sinni að ráðherrann og ráðherrarnir hafi ekki haft neina heimild í lögum til að gera það. Hvernig réttlætir hún þá þessa gjörð ef Ríkisendurskoðun fer þarna með rétt mál?
Í öðru lagi vil ég spyrja hvort hv. þingmaður sé þeirrar skoðunar að það sé í lagi að einkaskólar eða hvaða skólar sem er undirborgi kennara síns, borgi sem sagt undir þeim töxtum sem samið hefur verið um í frjálsum kjarasamningum á þessum markaði. Er hún þá þeirrar skoðunar fyrst hún tekur undir orð hv. þm. Ragnheiðar Ríkharðsdóttur um að eitthvað kunni að vera brogað við laun kennara í opinberu skólunum? (Gripið fram í.) Ja, það var nefnt hér hvort kennarar í opinbera kerfinu væru ofhaldnir af sínum launum. (ÞKG: Nei.) Ég gat ekki túlkað orð hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur öðruvísi en að hún væri að segja að fyrst við héldum því fram að hérna væru undirborganir á þessum markaði ættu menn frekar að fara í að skoða launakostnaðinn í opinbera geiranum. (Gripið fram í: Er þetta ekki …?)
Spurningin er: Eru kennarar á opinbera markaðnum ofhaldnir af launum sínum?