framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.
Frú forseti. Ég ítreka þessa beiðni mína, sérstaklega í ljósi þess að ég hef engin þau ummæli viðhaft sem mætti túlka sem árásir á hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Ég hef ekki gert annað en að tjá mig um skýrslu sem hér liggur fyrir til umræðu og tjáð mig um efnisatriði sem þar hafa komið fram. Þeir hörðu dómar sem túlka má yfir stjórnsýslu þáverandi menntamálaráðherra í málefni Menntaskólans Hraðbrautar eru felldir í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Það eru staðreyndir sem við getum ekki horft fram hjá og um þær staðreyndir hljótum við þingmenn að geta tjáð okkur. Ég frábið mér hártoganir um að ég hafi veist að hv. þingmanni. Það var algjörlega öfugt. Hún kom í ræðustól að tilefnislausu, dró inn í umræðuna óskylt mál sem þingmenn hafa ekki gögn um fyrir framan sig til að leggja mat á ummæli (Forseti hringir.) hennar eða efnisatriði máls. Þetta var persónuárás, frú forseti. (Forseti hringir.) Ég óska eftir því að forsætisnefnd fari yfir það mál.