framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.
Forseti. Sú beiðni sem komin er fram verður væntanlega tekin fyrir í forsætisnefnd því að ekki er hægt að hunsa slíka beiðni þingmanns en ég óska þá eftir því sem þingmaður að forsætisnefnd almennt sé á vaktinni yfir þeim orðum sem látin eru falla í margs konar umræðu hvert sinn, bæði prívat gagnvart fólki og síðan gagnvart flokkum. Ef menn ætla sér á annað borð að reyna að viðhalda þeirri stjórnmálamenningu sem hér er og hefur verið og hefur ekkert breyst frá hruni, frú forseti, þrátt fyrir skýrslu Alþingis beini ég þeim tilmælum til forseta að forseti beini þeim tilmælum til forsætisnefndar að fleira sé skoðað í máli þingmanna en eingöngu þau orðaskipti sem (Forseti hringir.) hér áttu sér stað.