139. löggjafarþing — 75. fundur,  17. feb. 2011.

framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.

380. mál
[16:51]
Horfa

Frsm. menntmn. (Skúli Helgason) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta var kostuleg ræða hjá hv. þm. Pétri H. Blöndal. Hann kastaði hér upp ályktunum sem hann dró af ræðu undirritaðs hér í þingsal en þær ályktanir voru því miður langt frá því að vera sannleikanum samkvæmar. Ef hann hefur eitthvað hlustað á framsöguræðu mína áðan finnur hann því hvergi stað að ég hafi notað þetta tilefni til að draga þá ályktun að minnka eigi rekstur einkaskóla í landinu, það er alröng ályktun sem hann ákvað að gefa einkunnina fáránleg. Ég get verið honum sammála, það er fáránlegt, en þetta er ekki í samræmi við það sem ég sagði hér. Síðan var hann með ýmsar fullyrðingar sem tengdust agamálum, agaleysi í meðferð opinbers fjár. Ég er honum sammála um að þetta dæmi er sorglegt dæmi um að menn fóru illa út af brautinni í þeim efnum.

Varðandi umræðuna um brottfall er ég sammála því að brottfallið er einn alvarlegasti vitnisburður um stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins í menntamálaráðuneytinu, í heil 17 ár. Það er gríðarlegur kostnaður sem ég held að við ættum að reyna að leggja mælistiku á hvað hefur kostað íslenskt samfélag, þ.e. að vera með brottfall sem nær upp undir 40% miðað við norræna rannsókn sem var birt vorið 2010. Það eru miklu hærri tölur en Pétur H. Blöndal dregur hér fram í tengslum við Menntaskólann Hraðbraut. (ÞKG: … peningarnir?) Það sem skiptir máli í því er ekki síst það að íslenskir nemendur eru í miklu ríkari mæli en nemendur í nágrannalöndunum að fara í bóknám en ekki starfsnám. (Gripið fram í.) Sjálfstæðisflokkurinn gerði ekkert á sínum langa valdaferli (Gripið fram í.) til að breyta þessu fyrr en í (Gripið fram í.) lokin þegar lögin 2008 komu, síðasta árið sem Sjálfstæðisflokkurinn var í menntamálaráðuneytinu. Þá hafði hann haft 17 ár til að bregðast við brottfallinu sem jókst og jókst á tímabilinu. Þetta er óþægilegur vitnisburður (Forseti hringir.) fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en hann getur ekki vikið sér undan honum.