framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.
Nei, ég ætla að bera af mér sakir.
(Forseti (ÞBack): Hv. þingmaður getur gert það í andsvari.)
Frú forseti. Þetta er alveg með ólíkindum. Ég tók sérstaklega fram í ræðu minni að mér þætti þetta sorglegt dæmi um opinbera fjársýslu (SkH: Þú nefndir ekki …) og eftirlitsleysi. Ég var ekkert að tala um óeðlilegar arðgreiðslur, ég var að tala um eðlilegar arðgreiðslur. Ég sagði aldrei að ég styddi þessar arðgreiðslur, aldrei nokkurn tímann. Það er algjörlega rangt. Og ég mótmæli því. Það sem hv. þingmaður sagði hins vegar á eftir var að það ætti ekki að borga arð yfirleitt, bara engan arð. Hann sagði það í andsvari þannig að ég ályktaði að hann vildi ekki hafa einkarekstur því að það gengur ekki að hafa einkarekstur með hlutafé ef ekki á að borga arð.
Varðandi Verslunarskólann, svo við tölum um hann, hann fær greitt fyrir húsnæði, hann fær leigu og hann stendur undir sér. Fjármagnið sem er sett inn í hann ber arð á þann hátt í sjálfseignarstofnuninni. Það er ekki hægt í neinu formi að hafa einhvern rekstur sem ekki borgar fyrir húsnæðið sem hann er í — nema hjá hinu opinbera. Þar er nefnilega ekki reiknað með vöxtum, fjármagnið er hreinlega gefið og því gleymt. Það gerist í opinberu skólunum. Það er kannski settur milljarður í einhvern skóla og svo er þessum milljarði bara gleymt. Það eru ekki reiknaðir vextir, ekki leiga, ekki neitt. Menn reikna stundum leigu fyrir ákveðnum rekstrarkostnaði við húsnæðið en ekki til að borga stofninn sjálfan, framlagið. Þess vegna er svo fráleitt að bera saman einkarekstur og opinberan rekstur og gleyma því að opinberi reksturinn fær fjárfestinguna gefna og ekki minnst á hana framar en hinir þurfa a.m.k. að ná inn vöxtum af því fé sem er lagt í fjárfestingar.