umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir kraftmikla ræðu. Það er greinilegt að hann hefur mjög sterkar skoðanir á þessu eins og margir fleiri.
Hv. þingmaður kom aðeins inn á þá fjármuni sem Evrópusambandið sjálft setur hérna í áróðurs- og kynningarstarfsemi. Ég hef verið að kynna mér aðeins hvernig þetta hefur þróast í Evrópusambandinu undanfarin ár. Nú er staðan þannig að Evrópusambandið eyðir meiru í auglýsingar og kynningar á eigin ágæti en Coca Cola-samsteypan gerir á heimsvísu. Þó er hún eitt af þessum stóru alþjóðlegu fyrirtækjum sem auglýsa alla jafna mjög víða. Nú er Evrópusambandið að byrja að setja fjármuni í kynningarstarfsemi sína hér, 160 milljónir strax á þessu ári. Síðan ætlar Evrópusambandið að þróa þessa kynningarpakka áfram og gerir ráð fyrir meiri fjárveitingum. Þar fyrir utan er hægt að sækja um styrki til að fara í kynnisferðir til Brussel, fá hingað fyrirlesara til að fjalla um ágæti Evrópusambandsins og svo eru sjóðir til hliðar þar sem hægt er að sækja um óbeina áróðursstyrki.
Þetta er það sem Evrópusambandið ætlar sér sjálft í kynningarstarfsemi, þessar 160 milljónir. Hvernig finnst hv. þingmanni þetta ríma við hugsunina um þá lýðræðislegu nálgun sem verið er að reyna að draga upp á þessu máli? Eins spyr ég hvort og þá hvernig hv. þingmaður telji að hægt sé að bregðast við þeim peningum sem hingað streyma.