139. löggjafarþing — 79. fundur,  24. feb. 2011.

innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.

541. mál
[16:08]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum um innstæðutryggingarkerfið og frestun á greiðslum sem áhöld eru um hvort nota eigi fyrir Icesave-byrðina. Það er algjörlega ljóst að það urðu vatnaskil í október 2008 þegar bankarnir féllu. Þá var búið að safna upphæðum í innstæðutryggingarsjóðinn sem ætlað var að standa undir greiðslum ef illa færi í bönkunum, ef einhver þeirra færi á hausinn, til að standa undir því að greiða innstæður til baka.

Síðan í október 2008 hafa safnast fjárhæðir inn í sjóðinn og áhöld eru um hvort eigi að nota þá peninga til að greiða í Icesave eða ekki. Ég tel að það sé viturlegt að fresta því í bili meðan frekari umræða á sér stað um hvernig fjármagna á að þessa Icesave-skuldbindingu og hvernig fer með innlánstryggingarkerfið.

Í ljósi þess að um frestun er að ræða hef ég ekki mótað mér beina afstöðu en mun gera það síðar, en ég tel skynsamlegt að gera það svona.