kynning vegna þjóðaratkvæðagreiðslu.
Forseti. Mig langar að beina máli mínu til innanríkisráðherra um kynningarmál og spyrja hann um kynningarmál vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave.
Í Morgunblaðinu síðastliðinn fimmtudag á síðu 14 stendur, með leyfi forseta:
„Innanríkisráðuneytið mun láta senda sérprentun Icesave-laganna sem forsetinn synjaði staðfestingar inn á öll heimili landsins, eins og kveðið er á um í lögum. Það hyggst ráðuneytið láta duga.“
Ég heyrði ekki betur en að ráðherrann tæki undir þetta í kvöldfréttum sjónvarps á föstudaginn.
Forseti. Nú er það svo að við Íslendingar erum að feta okkur áfram með alveg nýtt form í lýðræðinu, þjóðaratkvæðagreiðslur. Málið sem við ætlum að útkljá í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 9. apríl nk. er gífurlega flókið. Vissulega eru margir sem hafa sett sig vel inn í málið og kynnt sér samninginn og hvaða áhrif synjun hans eða samþykkt kann að hafa en ég leyfi mér að fullyrða að þeir séu fleiri sem hafa ekki sest vel yfir málið.
Þjóðaratkvæðagreiðslur tíðkast víða um heim og menn hafa fyrir löngu fundið út hvernig best er að standa að kynningarmálum. Víðast hvar sér óháð opinber stofnun um að taka saman gögn málsins á hlutlausan hátt og jafnvel flóknustu mál, eins og Icesave-samningarnir, eru gerð skiljanleg öllum þorra almennings. Það er þó mikilvægt að almenningur hafi líka greiðan aðgang að öllum frumgögnum.
Á Íslandi eru fjölmiðlar mjög pólitískir og kannski sérstaklega í Icesave-málinu. Ég vara eindregið við því að innanríkisráðherra láti fjölmiðla eina um kynningu á þessu máli. Við þingmenn erum mörg hver orðin afar fróð um málið en við fengum tækifæri til þess að kynna þjóðinni sjónarmið okkar á meðan málið var til umfjöllunar í þinginu. Þá áttum við sviðið, sá tími er liðinn.
Mér finnst að kjósendur eigi rétt á því að fá óháða kynningu sem þeir geta treyst. Því spyr (Forseti hringir.) ég ráðherrann: Er hann enn á þeirri skoðun að fjölmiðlar eigi að sjá um kynningu á málinu?