staða kjarasamninga á almennum og opinberum markaði.
Hæstv. forseti. Ég var beðinn að koma í utandagskrárumræðu um stöðu kjarasamninga á almennum og opinberum vinnumarkaði og geri það vegna þess að sáttasemjaraembættið heyrir undir velferðarráðuneytið og atvinnumálin auðvitað að stórum hluta og eðlilegt að við tökum þetta til umræðu. Ég vil þó í byrjun ítreka þá viðteknu venju sem gildir á innlendum vinnumarkaði að aðilar vinnumarkaðarins semja um kaup og kjör launafólks sem og önnur starfsskilyrði í frjálsum kjarasamningum án eða með afskiptum stjórnvalda. Sú venja er enn í fullu gildi og í þeim viðræðum sem eru í gangi á milli aðila, og ég hef fylgst með í fjölmiðlum rétt eins og ég geri ráð fyrir að flestir hafi gert, hafa auðvitað komið fram tilætlanir, kröfur og vangaveltur um hvernig aðkoma ríkisins verði í sambandi við þær viðræður.
Mér er kunnugt um að fjölmörgum kjaraviðræðum hefur verið vísað til ríkissáttasemjara sem er út af fyrir sig vel og þar standa því yfir viðræður einstakra samningsaðila. Þær má skoða á heimasíðu embættis ríkissáttasemjara, þar er ágætt yfirlit yfir það hver staðan er á einstökum samningum, og eins og þingheimur þekkir eru allir kjarasamningar í landinu, eins og kom fram hjá málshefjanda, nú lausir (Gripið fram í: Nei.) en þeir eru á bilinu 300–400 talsins bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum náðist samkomulag milli Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambandsins um miðjan febrúar síðastliðinn um að hefja vinnu við gerð langtímasamnings til þriggja ára sem hefði það að markmiði að auka kaupmátt og viðhalda stöðugleika í hagkerfinu.
Ég vil nýta þetta tækifæri og fagna því að menn séu sestir aftur af fullri alvöru að samningaborðinu sem er mjög mikilvægt. Eitt er ljóst að ræði menn ekki saman eru litlar líkur á að samningar líti dagsins ljós. Ég geri mér engu að síður grein fyrir að þessir tímar í efnahagslífi þjóðarinnar eru ekki þeir auðveldustu þegar kemur að því að gera samning til nokkurra ára. Samkvæmt endurskoðaðri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands fyrir árin 2010–2015 frá í nóvember síðastliðnum kemur fram að aðlögun atvinnulífsins og heimilanna að nýjum veruleika hefur verið erfið og gert sé ráð fyrir að svo verði áfram um sinn. Fyrirtæki jafnt sem heimili í landinu glíma við erfiðan skuldavanda enda þótt ýmsum úrræðum sé ætlað að koma til móts við mjög skuldsett fyrirtæki og heimili og er sú vinna í fullum gangi. Í því efni vil ég vekja athygli á að ég hef lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á húsnæðislöggjöfinni þar sem lagt er til að Íbúðalánasjóði verði gert heimilt að afskrifa veðlán sem eru á veðrétti umfram 110% af verðmæti fasteignar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Auðvitað er margt sem þarf að líta til varðandi stöðu samfélagsins og menn verða að horfast í augu við það að á síðustu árum frá hruni hefur orðið veruleg kaupmáttarrýrnun. Ég hef oft bent á það sem formaður fjárlaganefndar að við höfum orðið að horfast í augu við það að engin innstæða var fyrir mörgu af því sem gert var á árunum 2007–2008, það byggðist á lántökum og fölskum hagvexti vegna slíkra lána sem við vorum að taka og héldu hagkerfinu gangandi á yfirsnúningi með framkvæmdum sem byggðu eingöngu á lánsfé.
Við ræddum áðan um aðkomu ríkisins að slíkum kjarasamningum, að það hafi tíðkast undanfarin ár að aðilar vinnumarkaðarins hafi leitað til stjórnvalda þegar kjarasamningaviðræður standa yfir með þau atriði sem aðilar hafa talið mikilvægt að verði skipað með ákveðnum hætti svo greiða megi fyrir gerð kjarasamninga. Nú hefur verið boðað af núverandi samningsaðilum, að þeir muni koma til ríkisins með ákveðin mál og leita eftir tilstilli ríkisins varðandi frágang samninga.
Í fjölmiðlum í vikunni sem leið var haft eftir framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins að nú væri komið að því að samningsaðilar ræði við stjórnvöld og ég á því von á að formlegt samband verði haft við stjórnvöld á næstu dögum. Auðvitað hafa menn fylgst með og verið í sambandi reglulega en ákveðið var að bíða með þennan þátt formlega þar til menn væru búnir að ná ákveðinni samstöðu sín á milli.
Við erum að sjálfsögðu reiðubúin til að fara yfir þau atriði sem aðilar leggja áherslu á að verði rædd. Ég er þó ekki í stöðu til að gefa yfirlýsingar eða loforð um hvað ríkisstjórnin er tilbúin að fallast á í þessu sambandi. Það verða viðræður milli aðila að leiða til lykta.
Samtök atvinnulífsins hafa sett viðsemjendum sínum ákveðin skilyrði, sem hafa auðvitað tafið þessar umræður, varðandi sjávarútvegsmálin sem að mínu mati er afar óheppileg krafa og eitt af því sem þarf að ryðja úr vegi til þess að hægt verði að ganga frá samningum.
Það er rétt sem málshefjandi kom inn á að auðvitað þarf að skoða stöðu opinbera geirans ekki síður en almenna markaðarins. Ég kem kannski betur að því í síðari ræðu minni í utandagskrárumræðunni (Forseti hringir.) hvernig opinberir starfsmenn standa í launabaráttunni núna (Forseti hringir.) en ljóst er að þar þarf auðvitað að gæta vel að eins og fram hefur komið.