staða kjarasamninga á almennum og opinberum markaði.
Frú forseti. Ég byrja á að þakka umræðuna um stöðu kjaramála á opinberum og almennum markaði. Ég tek undir með hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni um að stéttarfélög, sérstaklega þau stéttarfélög sem fá félagsgjöld nánast í krafti laga, eru að breytast í stjórnmálaflokka. Ég hef bent á það áður. Þau eru að skipta sér af Icesave-samkomulagi og lögum þar um.
Menn eru búnir að gleyma fyrirbæri sem heitir stöðugleikasáttmáli og meira að segja endurhæfingarsjóðnum sem ég batt annars ákveðnar vonir við, en ekki verður af slíku, það er gleymt. Kjarabaráttan er varnarbarátta gagnvart öllum samningum. Bæði fyrirtæki og launþegar búa við vaxandi stöðnun sem er afleiðing af stefnu hæstv. ríkisstjórnar. Allir kjarasamningar bera þess merki.
Atvinnurekendur krefjast þess að gripið verði til aðgerða sem skapa hagvöxt og auka atvinnu, t.d. með því að lækka tryggingagjaldið og fjölga ferðamönnum. ASÍ leggur áherslu á að lífeyrisréttindi séu samræmd á milli opinbera markaðarins og hins almenna. Inn í það hefur auk þess blandast þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave, sem er dálítið furðulegt.
Hinn venjulegi launamaður horfir til niðurstöðu kjarasamninga í ofvæni og með ákveðnum ótta. Verða verkföll? Ræður hinn venjulegi launamaður við það? Verður launahækkun, sem ekki veitir af á flestum heimilum? Mun það verða til þess að fyrirtæki sem viðkomandi starfar hjá verður gjaldþrota og hann verður atvinnulaus? Það er mjög margt sem menn óttast í sambandi við kjarasamningana. Ég legg áherslu á að menn flýti (Forseti hringir.) þeim sem allra mest.