Vatnajökulsþjóðgarður -- framtíð krónunnar -- atvinnumál á Flateyri o.fl.
Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að við útbýtingu þingsályktunartillögu í gær, um skipun stjórnlagaráðs, setti mig hljóða og það er örugglega í fyrsta sinn.
Frú forseti. Í þingsályktunartillögunni stendur: „Alþingi ályktar að fela forseta Alþingis, að höfðu samráði við forsætisnefnd Alþingis, að skipa 25 manna stjórnlagaráð …“ Hér er lögð fram þingsályktunartillaga sem gengur út á það að fela forseta Alþingis í samráði við forsætisnefnd (Gripið fram í: … fundarstjórn forseta.) að ganga á svig við úrskurð Hæstaréttar sem dæmdi kosningu um stjórnlagaþing ógilda.
Frú forseti. (Gripið fram í: Nefndi það ekki.) Úrskurður Hæstaréttar var með þeim hætti … (Gripið fram í: Ákvörðun.) Hæstiréttur úrskurðaði að (Gripið fram í.) stjórnlagaþingskosningin væri ógild. Svo einfalt er það. Og hér er tillaga um að fela forseta Alþingis að fara á svig við ákvörðun Hæstaréttar og skipa 25 aðila sem misstu kjörgengi sitt í ógildingu kosningar til að skipa hina sömu aðila á ný í stjórnlagaráð. (MÁ: Við hvern er hún að tala?)
Frú forseti. Ég er að tala um störf þingsins. (MÁ: Við hvern?) — Sjálfa mig og forseta þingsins og þingmenn vegna þess að mér finnst, frú forseti, þetta algjörlega óásættanleg vinnubrögð, að ætla forseta Alþingis að ganga á svig við ákvörðun Hæstaréttar og ég efast um að svona tillaga geti verið þingtæk.