landlæknir og Lýðheilsustöð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hennar. Henni var tíðrætt um starfsfólkið. Það er vel og ég veit að hv. þingmaður hefur áhuga á þeim málum. Ég vil þess vegna spyrja hana aðeins út í nokkur mál því tengdu.
Í húsnæðismálum hefur t.d. ekki verið gert neitt fjárhagslegt mat og enginn virðist hafa áhyggjur af því í stjórnarmeirihlutanum. Mér finnst það mjög sérstakt því að það eru ekki góð skilaboð til heilbrigðisstofnana, sem berjast núna í bökkum og reyna að halda starfsfólki, að við svona sameiningu sé ekki farið fram á slíkt.
Nú liggur fyrir að það verður í það minnsta 12 millj. kr. meira greitt í húsaleigu, jafnvel meira ef menn ná ekki að endurleigja húsnæðið sem er til staðar núna sem allar líkur eru á. Mér sýnist t.d. alveg mega bæta 12 millj. kr. á ári við það. Þá erum við komin hátt í sparnaðarkröfu þessarar stofnunar í auknum húsnæðiskostnaði. Hefur hv. þingmaður áhyggjur af þeim þætti því að það þýðir bara uppsagnir starfsfólks eða að peningarnir verði í það minnsta ekki notaðir í annað? Það helsta sem peningar eru notaðir í á þessu sviði eru laun.
Síðan er hitt, hvað finnst hv. þingmanni um vinnulagið við ráðningarnar? Landlæknir bað starfsmenn um að koma með eða þá sem sýndu áhuga að senda inn starfsferilskrá sína og tók þá síðan í viðtal fyrir stofnun sem ekki er til. Þetta hefur m.a. verið gagnrýnt af stéttarfélaginu. Hvað finnst hv. þingmanni um það?