139. löggjafarþing — 83. fundur,  1. mars 2011.

landlæknir og Lýðheilsustöð.

190. mál
[18:26]
Horfa

Jónína Rós Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnirnar. Svo sannarlega þurfum við að horfa í hverja krónu. Það er að sjálfsögðu sárt að þessi samningur landlæknisembættisins sé þess eðlis að við getum ekki sagt honum upp. Við getum því ekki farið inn í eðlilegt húsnæðiskerfi þar sem tvær stofnanir segðu upp húsnæði sínu, við leigðum nýtt húsnæði og það kostaði kannski eitthvað örlítið meira en ekki eins mikið og raun ber vitni í þessu tilviki.

Ég leyfi mér að vera mjög bjartsýn og vona að við getum farið í þetta mál eins og ég sagði fyrr. Ég geri mér grein fyrir að það muni að sjálfsögðu geta haft áhrif á starfsemina. Það er að sjálfsögðu gert ráð fyrir að þessar stofnanir haldi sig innan fjárlaga en ég treysti því líka að það verði ákveðin hagræðing af því að sameina þær. Það hlýtur að vera hægt að samnýta bæði yfirstjórn og ákveðna skrifstofuvinnu. Ég trúi því að við gerum eins vel og hægt er en tek svo sannarlega undir að það er ekki gott að standa frammi fyrir þessum vanda með húsnæði. Þetta er náttúrlega óeðlilegt mál.

Í sambandi við vinnulag og landlækni get ég ekki séð hvernig er hægt að undirbúa breytingarferli þegar maður sameinar stofnanir ef ekki má þreifa fyrir sér og athuga hvað starfsmenn eru að hugsa. Jafnvel þó svo að frumvarpið sem við ræðum sé ekki orðið að lögum þá hljótum við að þurfa ákveðinn tíma til aðlögunar. Ég sé ekkert óeðlilegt við þetta vinnulag. (Forseti hringir.)