139. löggjafarþing — 84. fundur, 2. mars 2011.
skipun stjórnlagaráðs.
549. mál
Forseti. Ég vil segja hv. þingmanni það að ég hef unnið að þessu verki núna í hálfan mánuð og ég hef vandað mig sem best ég má. Ég hef ekki hlaupið þar að neinu frekar en ég hljóp að einhverju í morgun í allsherjarnefnd. Mér finnst bara rétt að þingmenn hlusti á það sem sagt er í ræðustól en hlaupi ekki alltaf upp til að snúa út úr því sem hér fer fram.