139. löggjafarþing — 85. fundur,  3. mars 2011.

umfjöllun félags- og tryggingamálanefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dagsettu 1. mars sl., hefur hún óskað eftir því við félags- og tryggingamálanefnd að nefndin fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um þjónustusamninga Barnaverndarstofu og lok þeirra. Það er í samræmi við þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar 2008.