þjóðgarðar.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir fyrirspurnina. Þetta er náttúrlega það umfangsmikið mál að það væri gott að hafa til þess lengri tíma að fara í gegnum samráðsferilinn eins og hann var. Það er rétt sem þingmaðurinn kemur að, það hafa verið nokkrir hvellir eftir að ég staðfesti þessa verndaráætlun, en það er svo samkvæmt lögunum um Vatnajökulsþjóðgarð að umhverfisráðherra er ekki gert eða ætlað að gera á verndaráætluninni, þ.e. tillögu stjórnar, efnislegar breytingar. Mitt verkefni er sem sé að fara yfir tillöguna út frá því að öllum lögformlegum skilyrðum hafi verið sinnt og niðurstaða mín, eftir að hafa verið með áætlunina undir höndum frá því í september, var sú að svo hefði verið. Hins vegar hafði ég af því nokkrar áhyggjur að ég fékk töluvert af athugasemdum meðan á þessari skoðun minni stóð og þær vörðuðu fyrst og fremst þrennt.
Í fyrsta lagi það sem þingmaðurinn nefnir hér, samráðsferlið í ferlinu sem stjórnin hafði með höndum. Í öðru lagi tvö efnisleg atriði, annars vegar vegna veiðinnar og hins vegar varðandi samgöngurnar. Ég hitti þó nokkuð marga aðila á þessu tímabili til að fara yfir þessar athugasemdir og af þeim sökum, til viðbótar við það að staðfesta tillögu stjórnarinnar, gerði ég um það tillögu til hennar við staðfestinguna að sett yrði á stofn sérstakt ráð sem fjallaði sérstaklega um samgöngurnar vegna þess að þetta er náttúrlega tillaga í sjálfu sér sem er til tíu ára en stjórnin getur gert tillögur um breytingar á þessari verndaráætlun. Mér þykir mikilvægt vegna þess að þarna er um að ræða yfir 600 kílómetra samgöngukerfi inni í þjóðgarðinum að yfir það sé farið með reglulegum hætti og (Forseti hringir.) ég óska eftir því að þeir aðilar sem sérstaklega varða samgöngurnar komi að borðinu með einhverjum hætti. Og þar þarf Vegagerðin líka að eiga sæti. Þjóðgarður er auðvitað vettvangur þar sem þarf að ríkja friður þannig að ég er sammála þingmanninum um það (Forseti hringir.) atriði.