skipun stjórnlagaráðs.
Virðulegur forseti. Ég fagna því sem fram kemur hjá hv. þingmanni, að þingmaður Sjálfstæðisflokksins væri tilbúinn til að styðja það að kosningin væri endurtekin. Ég hafði skilið það svo að Sjálfstæðisflokkurinn væri að meira eða minna leyti á móti því. Því hefur m.a. verið haldið fram í opinberri umræðu að það sé vegna þess að flokkurinn sé bara alfarið á móti því að einhverjir aðrir en Alþingi breyti stjórnarskránni.
Ég tel að sá málflutningur tilheyri og eigi að tilheyra átakastjórnmálum liðins tíma. Ég tel að menn hafi m.a. hér í vetur sýnt að í þinginu getur búið þroski til þess að hefja sig upp yfir víggirðingar stjórnar og stjórnarandstöðu og ég tel að meiri hluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins hafi í stóru og erfiðu máli áður í vetur sýnt að hann sé til þess fær að ræða sig til niðurstöðu við stjórnarmeirihlutann um það hvernig farsællega megi leiða mál til lykta. Ég trúi því og treysti að menn í allsherjarnefnd geti gert það í þessu máli líka.