skipun stjórnlagaráðs.
Hæstv. forseti. Bara til að taka það fram var það auðvitað svo, eins og hv. þm. Helgi Hjörvar veit og man, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins lýstu því yfir við allar umræður um stjórnlagaþingslöggjöfina á síðasta ári að þeir felldu sig ekki við þá hugmynd og það meginfyrirkomulag stjórnlagaþings sem þar var gert ráð fyrir þótt menn greiddu hins vegar ekki atkvæði gegn hinni endanlegu útgáfu á þeirri forsendu að fram hefðu náðst ákveðnar breytingar, sérstaklega hvað varðar þjóðfund og starf stjórnlaganefndar, sem mönnum fannst til framfara. Ég vil að það liggi fyrir.
Hitt er annað mál sem við getum rætt, og þurfum sjálfsagt að ræða betur síðar, að ef farið yrði í nýjar kosningar sem er ekki það sem hér er lagt til en er þó alltaf hugsanlegt er ég þeirrar skoðunar að ráðast þyrfti í víðtækari breytingar á lögunum vegna þess að ég held að (Forseti hringir.) vandamálin sem leiddu til ógildingarinnar liggi djúpt í löggjöfinni sjálfri og verði ekki leyst með einföldum tæknilegum breytingum.