skipun stjórnlagaráðs.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að eiga í orðaskaki við flutningsmenn tillögunnar um það hver hugur þeirra var með tillöguflutningnum. Hann hefur auðvitað verið sá sem hv. þm. Álfheiður Ingadóttir lýsir. Ástæða þess að ég vék með þessum hætti að því var að þegar ég sat í salnum og fylgdist með umræðunni í gær leyndist mér ekki að þingmenn fjölluðu hver á fætur öðrum um þetta sem skásta kostinn, skástu reddinguna, ef við notum hefðbundið íslenskt orðfæri.
Ég er bara þeirrar skoðunar að það sé ekki fullnægjandi umbúnaður um stjórnlagaþing og það mikilvæga verkefni að endurskoða stjórnarskrána. Það er miður að þetta sé ekki á traustari grunni byggt heldur sé svo umdeilt sem raun ber vitni og ég treysti því að (Forseti hringir.) hv. þingmanni þyki þau sjónarmið málefnaleg eins og ég hygg að hugur þingmannanna með flutningi málsins sé auðvitað.