skipun stjórnlagaráðs.
Frú forseti. Ég lít ekki svo á að hér sé um einhverja reddingu að ræða, svo það sé alveg ljóst, og heldur ekki að sú tillaga sem hér er flutt byggi á ótraustum grunni. Ég geri mér hins vegar fyllilega grein fyrir því að um hana er ekki full samstaða. Það er uppi ágreiningur um það hvernig brugðist skuli við þeirri stöðu sem við erum í eftir ógildingu Hæstaréttar.
Við sem flytjum þessa tillögu teljum mikilvægt að það verði ekki rof á þeirri vinnu sem þingið hafði sett af stað í allgóðri samstöðu við endurskoðun á stjórnarskránni. Ég óttast að einhver af þeim leiðum sem hér hafa helst verið til umræðu og byggjast á því að fara í að endurskoða lögin um stjórnlagaþing og kjósa eftir nýjum lögum muni tefja og jafnvel eyðileggja það ferli. Kannski er það það sem sumir hér vilja.