139. löggjafarþing — 85. fundur,  3. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[12:13]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér stórt og að mörgu leyti umdeilt mál. Það náðist þó nokkuð góð samstaða um að fara þá leið sem í rauninni mistókst og Hæstiréttur úrskurðaði að væri ógild, hefði ekki verið nógu vel undirbúin eða hvernig sem menn leggja það út. Niðurstaða Hæstaréttar, æðsta dómstóls landsins, varð að þetta gengi ekki með þessum hætti. Ég hef alltaf haft ákveðnar efasemdir um að sú leið að boða til stjórnlagaþings sé sú rétta. Ég hef hins vegar hlustað á rök þeirra sem hafa viljað fara hana og studdi það hér í þinginu að kosið yrði til stjórnlagaþings. Ég hefði því stutt þá tillögu að byrjað yrði upp á nýtt, þ.e. að undirbúningurinn yrði með öðrum hætti, lagaramminn gerður betri og óumdeildari og síðan mundum við gera þetta eins og til var ætlast í upphafi.

Stjórnarskrá Íslands hefur staðist tímans tönn en hins vegar er mjög eðlilegt að hún verði endurskoðuð. Okkur greinir á um hvaða leiðir eigi að fara í til endurskoðunar. Mín skoðun er sú að ekkert í stjórnarskránni hafi t.d. orsakað fjármálahrunið sem hér varð, það voru aðrir hlutir. Það er hins vegar ýmislegt sem þarf að koma inn í stjórnarskrána. Ég vil taka sérstaklega fram að það þarf t.d. að skýra það að auðlindir eru eign þjóðarinnar, eign ríkisins, eign fólksins. Þeir sem nýta þær hafa hins vegar afnotarétt. Ég vildi gjarnan sjá betur gert grein fyrir þessu í stjórnarskránni.

Ég ber fulla virðingu fyrir skoðun þeirra sem vilja fara þá leið sem hér er til umræðu, þ.e. að skipa 25 manna nefnd. Ég er hins vegar algjörlega ósammála því að fara hana, fyrst og fremst vegna þess að ég tel að það sé verið að fara á svig við dóm Hæstaréttar með þeirri hugmynd að skipa 25 einstaklinga hverra kjörbréf voru afturkölluð eða dæmd ógild. Ég fæ ekki séð að þessir ágætu einstaklingar séu eitthvað betur til þess fallnir að vera valdir með þessum hætti, með jafnvel takmarkaðra umboði en þeir höfðu út úr kosningunum á sínum tíma. Það verður að segjast eins og er að þátttakan í kosningunum var mjög lítil, ríflega 36%, sem er áhyggjuefni. Svo höfum við hvert okkar alls konar skoðanir á kosningakerfinu og hvernig það virkar. Ég tel að það hafi á engan hátt virkað. Þá horfi ég m.a. til skiptingar milli höfuðborgar og landsbyggðar, það er kannski samt tæknilegt atriði.

Trúverðugleiki þeirrar vinnu sem á sér stað við endurskoðun stjórnarskrárinnar þarf að vera eins lítið vefengjanlegur og hægt er. Ég get ekki séð að sú tillaga sem hér er lögð fram verði til þess að skapa sátt eða trúverðugleika gagnvart þeirri niðurstöðu sem kynni að koma út úr vinnu nefndarinnar. Þess vegna kemst ég alltaf að þeirri niðurstöðu aftur og aftur að ef það á að skipa aðila utan Alþingis í að endurskoða stjórnarskrána sé betra að byrja upp á nýtt og fara þá leið sem við ætluðum í upphafi, en gera það mjög vel og skynsamlega.

Ég er ekki sammála því að það sé til þess að tefja og eyðileggja. Ég er búinn að lýsa því yfir að ég mundi styðja slíkt. Það þarf hins vegar undirbúning, hvort hann á að standa í hálft ár eða eitt ár veit ég ekki. Ég verð bara að viðurkenna að ég geri mér ekki alveg grein fyrir því. Við megum ekki flýta okkur um of. Það á ekki að vinna breytingar á stjórnarskrá undir tímapressu eða flýta sér að því. Það er hins vegar alveg rétt sem kom fram að það er áhyggjuefni að ekki hafi gengið betur á Alþingi að koma breytingum í gegnum stjórnarskrá, ég tek undir það. Ég skynja hins vegar mikinn vilja hér inni til að gera breytingar.

Menn velta fyrir sér umboði. Nú erum við 63 þingmenn með umboð u.þ.b. 90% þjóðarinnar til að starfa hér, þar á meðal að breyta stjórnarskrá. Ég fæ ekki séð að nefnd sem hefur umboð þrjátíu og tveggja, þriggja, fjögurra, hvað það verður, þingmanna, og hafði í raun mjög veikt umboð frá þjóðinni áður, hafi meira umboð til þess en þingmennirnir. Það var hins vegar margt forvitnilegt og mjög gott sem kom út úr vinnunni í aðdraganda stjórnlagaþings, eins og þjóðfundurinn. Ég dreg ekki dul á það.

Mér finnst líka, virðulegi forseti, að við þurfum að læra af sögunni og reynslunni. Vinnubrögð voru gagnrýnd í rannsóknarskýrslunni og af þingmannanefndinni og lagðar fram tillögur um að breyta þeim. Mér finnst við ekki koma með ný vinnubrögð þegar við erum að fara, eins og hæstv. innanríkisráðherra orðaði það, fjallabaksleið fram hjá því sem Hæstiréttur kvað upp úr um. Það eru margar hliðar á þessu máli sem við verðum að horfa á. Nú eru eitthvað um 15 þingmenn á mælendaskrá í þessu máli. Það segir okkur að skoðanir um það eru mjög skiptar og við munum væntanlega taka daginn í dag að miklu leyti í að ræða þetta mál.

Það er ekki gott að fara út af þingi með mál sem lýtur að svo veigamiklu hlutverki. Ég vona að allir séu sammála mér um að það er gríðarlega mikilvægt að endurskoða stjórnarskrána og að stjórnarskráin sé okkur mjög mikilvæg og því vafasamt að mjög tæpur meiri hluti samþykki þessa leið. Það segir okkur um leið að þeir sem ekki munu samþykkja hana telji sig væntanlega óbundna af því sem kemur út úr nefndinni. Ég er ekki að segja að með því að gera það sem ég ræddi í upphafi, að byrja upp á nýtt, hefði náðst alger samstaða en við vitum þó að mun breiðari hópur studdi þá leið sem farin var en gekk því miður ekki upp.

Eins og kom fram í máli mínu áðan er það að breyta stjórnarskrá ekkert grín, eða gustukaverk ef ég má orða það þannig. Í ljósi þess að í þeirri stjórnarskrá sem við búum við í dag er kveðið á um hlutverk Alþingis og dómstóla veltir maður því óneitanlega fyrir sér hvort það sé við hæfi að leita leiða til að komast fram hjá dómi Hæstaréttar. Mér finnst pressan vera svo mikil eða ákafinn að komast í þessa vinnu að það sé í lagi að fara fram hjá Hæstarétti.

Í greinargerð með tillögunni stendur, með leyfi hæstv. forseta:

„Með ákvörðun hinn 25. janúar 2011 ógilti Hæstiréttur Íslands kosningu þá til stjórnlagaþings sem fram hafði farið. Sú ákvörðun er bindandi og endanleg. Ekki kom því til þess að stjórnlagaþing yrði sett af hálfu forseta Alþingis 15. febrúar sl. eins og til stóð.“

Ákvörðunin er bindandi og endanleg. Það er það sem við þurfum að sætta okkur við, eins og í þessu tilviki með dóm Hæstaréttar. Það er einfaldlega þannig og ég get ekki, svo ég tali bara fyrir sjálfan mig, tekið þátt í að hunsa þá niðurstöðu. Mér finnst ég vera að taka þátt í ferli sem við sjáum í einhverjum ríkjum sem við viljum kannski ekki endilega bendla okkur við. Þá hafa lagaprófessorar bent á að það sé óheppilegt að fara þessa leið, m.a. Ragnhildur Helgadóttir og Róbert Spanó. Hann segir m.a. að stjórnmálamenn verði að byggja það á öðrum og málefnalegum forsendum en niðurstöðu ógildra kosninga að velja þessa 25.

Við erum komin að þeim tímapunkti að um þetta er ósætti víða, ekki bara á Alþingi. Ég tel að varðandi þessa tillögu sé betra að (Forseti hringir.) hún nái ekki fram að ganga, heldur verði önnur leið farin.