lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég minni á það að þegar forseti Alþingis, sú sem nú situr, tók við störfum á Alþingi var það markmið hennar að hafa þetta fjölskylduvænan vinnustað. Nú er klukkan orðin korter yfir tvö og við þingmenn erum að frétta að við eigum að ræða hér málin fram á nótt.
Frú forseti. Þetta er algjörlega óásættanlegt þar sem þingmenn hafa skipulagt daginn og gert ráðstafanir með kvöldið en þetta er akkúrat ofríki þess að við búum hér við meirihlutastjórn og að forseti kemur úr stjórnarliðinu. Þetta kristallast í þessu máli. Það er verið að breiða yfir mistök á mistök ofan hjá þessari ríkisstjórn með því að hunsa hér dóm Hæstaréttar í því máli sem nú liggur fyrir og það á bara að ræða það á nóttunni eins og önnur óþægileg mál sem þessari ríkisstjórn tekst að klúðra. Ég mótmæli framlengingu á þessum fundi. [Kliður í þingsal.]