139. löggjafarþing — 85. fundur,  3. mars 2011.

lengd þingfundar.

[14:15]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er í anda skipulagningarinnar hjá hæstv. ríkisstjórn að koma nú fram og segja að það eigi að ræða þetta inn í nóttina. Ég hef verið að fylgjast svolítið með stjórnarliðum, hvað menn eru hér að tala nákvæmlega um. Hið eina sem er hægt að fá út úr stjórnarliðum er að hv. þm. Árni Þór Sigurðsson ætlar að ræða með heilbrigðum hætti út nóttina um skipun stjórnlagaráðs, en annað vitum við ekki.

Það eru hérna 13 mál á dagskránni, mörg ágæt. 13. málið er göngubrú yfir Ölfusá sem ég held að sé hið besta mál. En ég held að það væri ágætt, virðulegi forseti, að menn mundu bara segja hvað þeir ætluðu sér. Eru einhver mál þarna sérstaklega sem mönnum liggur alveg gríðarlega mikið á og ætla að vera hér fram eftir öllu til að ræða um? Ef menn geta ekki sagt frá því hver ætlun þeirra er, því að þetta kemur flatt upp á alla þá sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum málum — þetta er (Forseti hringir.) ekki það sem var lagt upp með — er ekki góður (Forseti hringir.) bragur á því. Ég held að menn geti ekki fundið nein málefnaleg rök fyrir því að koma fram með þessum hætti.