skipun stjórnlagaráðs.
Virðulegi forseti. Það er ekki nema von að hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir sé flutningsmaður þessarar tillögu þar sem hún skildi ekki ræðu mína áðan vegna þess að ég fór yfir grunnþekkingu í stjórnskipun landsins, hvernig breyta á stjórnarskrá og hvað þarf til til að stjórnarskrá verði breytt.
Nú skal ég svara því sem þingmaðurinn spurði mig, hvort ég væri ekki almennt á móti því að stjórnlagaþing mundi starfa. Svarið er jú. Ég er svo mikil prinsippmanneskja, ég hef lært lögfræði og ég veit það svo mætavel að stjórnskipunarvaldið liggur hjá Alþingi. Ég var á móti því að úthýsa því valdi út fyrir þessa veggi af prinsippástæðum, enda hefur það komið í ljós að það á skipa 25 aðila sem hlutu kjör í ógildri stjórnlagaþingskosningu til að fara með þetta vald og það er látið eins og þessir aðilar komist að einhverri frekari niðurstöðu (Forseti hringir.) til breytingar á stjórnarskrá og vísað er í það að þingmenn komist aldrei að niðurstöðu. (Forseti hringir.) Þetta eru ekki rök sem ég kaupi. Stjórnskipunarvaldið er hér.